Líf sýrlenskra barna eyðilagt Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. júlí 2013 21:00 Börn í Raqqa á Sýrlandi. Nordicphotos/AFP
Hætt er við því að þegar sýrlensk börn vaxa úr grasi verði þau bæði ólæs og full af reiði og jafnvel heift vegna stríðsátakanna, sem lagt hafa líf þeirra í rúst. Þetta segir Leila Zerrougui, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart börnum og stríðsátökum, sem nú er komin til Beirút í Líbanon eftir þriggja daga heimsókn til Sýrlands. Hún sat þar í dag sameiginlegan fund með embættismönnum og leiðtogum stjórnarandstöðunnar. Þegar stríðinu lýkur, segir Zerrougui, þá „þurfið þið að takast á við heila kynslóð barna sem hafa misst af bernsku sinni, sem verða bæði full haturs og ólæs.” Borgarastríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Átökin hafa lagt fjölmarga skóla í rúst, en þeir sem enn standa eru margir notaðir sem húsaskjól fyrir flóttafólk. Zerrougui hefur undanfarið heimsótt flóttamannabúðir í nágrannalöndum Sýrlands, Líbanon, Jórdaníu, Tyrklandi og Írak. Hjálparsamtök segja að meira en tvær milljónir barna í Sýrlandi líði nú næringarskort og sjúkdóma af ýmsu tagi. Þau hafi orðið fyrir miklu áfalli og ofan á allt saman hefur sumum þeirra verið þröngvað í hjónabönd allt of ungum. Stríðsátökin hafa kostað meira en sjö þúsund börn lífið, en alls hafa meira en 93 þúsund manns látist í þessum hildarleik sem hófst í mars árið 2011 með friðsamlegum mótmælum.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira