Erlent

Líf sýrlenskra barna eyðilagt

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Börn í Raqqa á Sýrlandi.
Börn í Raqqa á Sýrlandi. Nordicphotos/AFP
Hætt er við því að þegar sýrlensk börn vaxa úr grasi verði þau bæði ólæs og full af reiði og jafnvel heift vegna stríðsátakanna, sem lagt hafa líf þeirra í rúst.

Þetta segir Leila Zerrougui, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart börnum og stríðsátökum, sem nú er komin til Beirút í Líbanon eftir þriggja daga heimsókn til Sýrlands.

Hún sat þar í dag sameiginlegan fund með embættismönnum og leiðtogum stjórnarandstöðunnar.

Þegar stríðinu lýkur, segir Zerrougui, þá „þurfið þið að takast á við heila kynslóð barna sem hafa misst af bernsku sinni, sem verða bæði full haturs og ólæs.”

Borgarastríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Átökin hafa lagt fjölmarga skóla í rúst, en þeir sem enn standa eru margir notaðir sem húsaskjól fyrir flóttafólk.

Zerrougui hefur undanfarið heimsótt flóttamannabúðir í nágrannalöndum Sýrlands, Líbanon, Jórdaníu, Tyrklandi og Írak.

Hjálparsamtök segja að meira en tvær milljónir barna í Sýrlandi líði nú næringarskort og sjúkdóma af ýmsu tagi. Þau hafi orðið fyrir miklu áfalli og ofan á allt saman hefur sumum þeirra verið þröngvað í hjónabönd allt of ungum.

Stríðsátökin hafa kostað meira en sjö þúsund börn lífið, en alls hafa meira en 93 þúsund manns látist í þessum hildarleik sem hófst í mars árið 2011 með friðsamlegum mótmælum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×