Fráfall mágkonunnar hafði úrslitaáhrif á ákvörðun Ferguson Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2013 07:17 Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson, fráfarandi knattspyrnustjóri Manchester United, greindi frá því eftir leik í gær að hann hefði ákveðið að hætta fyrir um fimm mánuðum síðan. „Það var í kringum síðustu jól,“ sagði Ferguson eftir 2-1 sigur sinna manna á Swansea í gær. Það var síðasti leikur Ferguson á Old Trafford og fékk liðið enska meistarabikarinn afhentan eftir leik. „Hlutirnir breyttust þegar að systir Cathy dó,“ sagði Ferguson enn fremur en Cathy er eiginkona Ferguson. „Hún er því einangruð en hún hefur verið höfuð fjölskyldunnar í 47 ár, hugsað um þrjá syni okkar og fórnað sjálfri sér fyrir mig.“ „Hún á barnabörnin sín og þau elska hana. En hún hefur misst systur sína og besta vin sinn. Það hafði mikið að segja um mína ákvörðun.“ „Ég tel það líka mikilvægt að hætta sem sigurvegari. Það skiptir miklu máli í þessu félagi. Það var það eina sem ég vildi vera hjá þessu félagi - sigurvegari.“ Ferguson vildi halda ákvörðun sinni leyndri lengur en sögusagnir fóru á kreik á þriðjudagskvöldið. Þá var ekki hægt að þegja lengur þar sem hann vildi greina leikmönnum liðsins frá ákvörðun sinni sjálfur. „Ég var næstum búinn að missa þetta út úr mér við fjölskylduna. Við létum syni okkar vita í mars en bróðir minn fékk að vita þetta á þriðjudaginn.“ Rio Ferdinand skoraði sigurmark United undir lok leiksins. Ferguson fannst það viðeigandi. „Mörk á lokamínútunum. Ég elska þau,“ sagði hann og brosti. „Við höfum stundum tapað leikjum á lokamínútunum en það er allt saman hluti af sögunni líka.“ „Mér finnst erfitt að horfa til baka en ég hef tíma til þess núna. Líklega er mikilvægasti titillinn sá fyrsti sem við unnum árið 1993. Þá opnaðist möguleikinn á fleiri titlum.“ Ferguson verður nú í stjórn félagsins og í hlutverki sendiherra. En hann getur gefið sér tíma fyrir aðra hluti á efri árunum. „Franskan mín er ekki svo slæm en ég er ekki nógu góður á píanóið. Kannski fer ég í kennslu ef ég hef tíma til þess.“
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira