Erfitt að eyða efnavopnum Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. september 2013 00:01 Bashar Jaafari, sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum, veifar skjali sem hann segir innihalda upplýsingar frá bandarísku leyniþjónustunni um efnavopn í Ísrael. Nordicphotos/AFP
Fyrir þrjátíu árum undirrituðu Bandaríkin alþjóðlegan samning sem bannar framleiðslu og notkun efnavopna. Enn eru þó 3.000 tonn af slíkum vopnum eftir í Bandaríkjunum og ekki er reiknað með að búið verði að eyða þeim öllum fyrr en árið 2023. Þetta er þrisvar sinnum meira magn en talið er að Sýrlendingar ráði yfir, en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að Sýrlandsstjórn losi sig við sín efnavopn hið allra fyrsta. Við undirritun samningsins áttu Bandaríkin í fórum sínum 31.500 tonn af efnavopnum, þannig að á þrjátíu árum hefur þeim tekist að losa sig við rúmlega 90 prósent þeirra. Bandaríkin hafa rekið sig á það, rétt eins og önnur lönd sem reynt hafa, að býsna erfitt er að losa sig við efnavopn. Hvað eftir annað hefur sá frestur sem settur hefur verið runnið út eða verið framlengdur þegar ljóst var orðið að markmiðin myndu ekki nást. Sýrlendingar hafa nú, samkvæmt tillögu Rússa, fallist á að láta efnavopn sín af hendi til eftirlits og eyðingar en óljóst er um framkvæmdina. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur síðustu tvo daga setið á fundum með Sergei Lavrov, rússneskum starfsbróður sínum, og krafist skýringa á því hvernig Rússar hafa hugsað sér að fá Sýrlendinga til þess að standa við loforð um afhendingu og eyðingu efnavopna sinna. Sýrland er eitt af fáum ríkjum heims sem ekki hafa undirritað alþjóðlega samninginn, en hafa nú óskað eftir að gerast aðilar að honum, í samræmi við tillögur Rússa. Sýrlandsstjórn segist ætla að láta efnavopn sín af hendi til eftirlits og eyðingar mánuði eftir undirritun. Samningurinn hefur verið undirritaður og staðfestur af flestum ríkjum Sameinuðu þjóðanna. Fimm ríki hafa þó enn ekki undirritað hann, en þau eru Angóla, Egyptaland, Norður-Kórea, Sómalía og Sýrland. Að auki hafa Ísrael og Búrma undirritað samninginn en ekki staðfest hann. Alls gáfu sjö ríki upp efnavopnaeign upp á samtals 70 þúsund tonn og þrjú þeirra hafa klárað að losa sig við þau.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Sjá meira