Erlent

Erfitt að eyða efnavopnum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Bashar Jaafari, sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum, veifar skjali sem hann segir innihalda upplýsingar frá bandarísku leyniþjónustunni um efnavopn í Ísrael.
Bashar Jaafari, sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum, veifar skjali sem hann segir innihalda upplýsingar frá bandarísku leyniþjónustunni um efnavopn í Ísrael. Nordicphotos/AFP
Fyrir þrjátíu árum undirrituðu Bandaríkin alþjóðlegan samning sem bannar framleiðslu og notkun efnavopna. Enn eru þó 3.000 tonn af slíkum vopnum eftir í Bandaríkjunum og ekki er reiknað með að búið verði að eyða þeim öllum fyrr en árið 2023.

Þetta er þrisvar sinnum meira magn en talið er að Sýrlendingar ráði yfir, en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að Sýrlandsstjórn losi sig við sín efnavopn hið allra fyrsta.

Við undirritun samningsins áttu Bandaríkin í fórum sínum 31.500 tonn af efnavopnum, þannig að á þrjátíu árum hefur þeim tekist að losa sig við rúmlega 90 prósent þeirra.

Bandaríkin hafa rekið sig á það, rétt eins og önnur lönd sem reynt hafa, að býsna erfitt er að losa sig við efnavopn.

Hvað eftir annað hefur sá frestur sem settur hefur verið runnið út eða verið framlengdur þegar ljóst var orðið að markmiðin myndu ekki nást.

Sýrlendingar hafa nú, samkvæmt tillögu Rússa, fallist á að láta efnavopn sín af hendi til eftirlits og eyðingar en óljóst er um framkvæmdina.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur síðustu tvo daga setið á fundum með Sergei Lavrov, rússneskum starfsbróður sínum, og krafist skýringa á því hvernig Rússar hafa hugsað sér að fá Sýrlendinga til þess að standa við loforð um afhendingu og eyðingu efnavopna sinna.

Sýrland er eitt af fáum ríkjum heims sem ekki hafa undirritað alþjóðlega samninginn, en hafa nú óskað eftir að gerast aðilar að honum, í samræmi við tillögur Rússa.

Sýrlandsstjórn segist ætla að láta efnavopn sín af hendi til eftirlits og eyðingar mánuði eftir undirritun.

Samningurinn hefur verið undirritaður og staðfestur af flestum ríkjum Sameinuðu þjóðanna. Fimm ríki hafa þó enn ekki undirritað hann, en þau eru Angóla, Egyptaland, Norður-Kórea, Sómalía og Sýrland. Að auki hafa Ísrael og Búrma undirritað samninginn en ekki staðfest hann.

Alls gáfu sjö ríki upp efnavopnaeign upp á samtals 70 þúsund tonn og þrjú þeirra hafa klárað að losa sig við þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×