Phillips skaut Crystal Palace í ensku úrvalsdeildina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. maí 2013 10:28 Kevin Phillips skorar sigurmark Crystal Palace úr vítaspyrnu. Nordicphotos/Getty
Gamla brýnið Kevin Phillips tryggði Crystal Palace sæti í ensku úrvalsdeidlinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Watford 1-0 í framlengdum leik á Wembley. Eina markið kom úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks framlengingar. Spennustigið var hátt á Wembley enda mikið í húfi. Leikurinn er oft nefndur 120 milljóna punda leikurinn vegna þeirra gífurlegu fjárhæða sem félögin í ensku úrvalsdeildinni fá vegna sjónvarpsréttar. Dramatík er árlegur viðburður í úrslitaleik umspilsins og á því varð engin undantekning þótt betri fótbolti og fleiri mörk hafi oftar en ekki verið á dagskránni. Úr leiknum á Wembley í dag.Nordicphotos/Getty Wilfried Zaha, leikmaður Manchester United sem er í láni hjá Crystal Palace, var sprækur í fyrri hálfleiknum en annars var lítið um færi í venjulegum leiktíma. Það var hins vegar Zaha sem sótti vítaspyrnuna dýrmætu undir lok fyrri hálfleiks framlengingar. Marco Cassetti, lánsmaður frá Udinese, braut á Zaha og ljóst að Ítalinn vill gleyma leiknum sem fyrst. Phillips skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni og stuðningsmenn Lundúnarliðsins ærðust af fögnuði. Phillips verður fertugur í júlí og mikill styrkur fyrir Palace að geta sett svo reynslumikinn leikmann á vítapunktinn þegar svo mikið var í húfi. Ian Holloway og Gianfranco Zola á hliðarlínunni í dag.Nordicphotos/Getty Watford reyndi hvað það gat til að jafna metin og komst nálægt því í tvígang undir lok framlengingar. Í annað skiptið björguðu liðsmenn Palace á línu og í síðara skiptið fór boltinn hárfrínt fram hjá. Það er því ljóst að Cardiff, Hull og Crystal Palace eru liðin þrjú sem bætast í hópinn í ensku úrvalsdeildina á næstu leiktíð. Reading, Wigan og QPR féllu hins vegar úr deildinni. Ian Holloway endurnýjar því kynnin við ensku úrvalsdeildina. Hann stýrði Blackpool í deild hinna bestu leiktímabilið 2010-2011. Gianfranco Zola og hans menn í Watford þurfa að sætta sig við annað ár í næstefstu deild.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sport Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira