Skytturnar þrjár komnar með ellefu mörk saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2013 06:00 Alfreð Finnbogason. Mynd/NordicPhotos/Getty
Kolbeinn Sigþórsson, Alfreð Finnbogason og Aron Jóhannsson voru allir á skotskónum um helgina og það stefnir í mikið markastríð á milli íslensku framherjanna í hollensku deildinni ef heldur áfram sem horfir. Kolbeinn og Aron fögnuðu einnig þremur stigum í húsi með liðum sínum Ajax og AZ Alkmaar en Alfreð og félagar í Heerenveen töpuðu sínum fyrsta leik í vetur. Alfreð og Aron hafa báðir skorað í öllum leikjum tímabilsins til þessa en Alfreð er nú markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar með fjögur mörk í þremur umferðum. Aron hefur skorað eitt mark í öllum þremur leikjum AZ Alkmaar og hann skoraði einnig eitt mark í Meistarakeppninni og er því kominn með fjögur mörk í fjórum leikjum. Missir íslenska landsliðsins er því augljóslega mikill. Kolbeinn afgreiddi Feyenoord með tveimur mörkum í gær en þetta voru fyrstu deildarmörk hans á tímabilinu. Kolbeinn skoraði aftur á móti eitt mark í Meistarakeppninni og hefur því skorað þrjú mörk í fjórum leikjum á tímabilinu. Kolbeinn missti af fimm mánuðum af síðasta tímabili vegna meiðsla en skoraði sex mörk í síðustu níu leikjunum á tímabilinu og minnti síðan verulega á sig í gær. Kolbeinn hefur verið óheppinn með meiðsli fyrstu tímabilin sín með Ajax en hefur þegar fagnað tveimur meistaratitlum. Mörkin hans í gær þýða að hann hefur nú skorað fleiri deildarmörk fyrir Ajax (16) en hann gerði á sínum tíma fyrir AZ Alkmaar (15). Alfreð Finnbogason bætti markamet Péturs Péturssonar í hollensku úrvalsdeildinni í fyrra þegar hann skoraði 24 mörk í 31 leik fyrir Heerenveen. Aron Jóhannsson lýsti því yfir fyrir tímabilið að hann ætlaði að taka metið af Alfreð og miðað við þessa byrjun er honum greinilega full alvara. Á sama tíma er Alfreð að sýna okkur að hann ætlar að gera betur en í fyrra. Íslensku leikmennirnir hafa nú gert níu deildarmörk í fyrstu þremur umferðunum. Það eru rúmar 30 umferðir eftir með vonandi nóg af íslenskum mörkum. Íslensku mörkin urðu alls 38 talsins í hollensku deildinni á síðasta tímabili (Alfreð 24, Kolbeinn 7, Aron 3, Jóhann Berg 2 og Guðlaugur Victor 2) og gætu orðið mun fleiri á þessu tímabili.
Fótbolti Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Fleiri fréttir „Dómararnir á HM eru ekki nógu góðir“ Romário segir frammistöðu Brasilíu sorglega Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Hetjurnar frá 1998 telja að Noregur geti orðið heimsmeistari Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Til Tottenham fyrir sautján milljarða Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fimmti stjóri Forest á einu ári Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Skera niður hjá stelpunum Frækinn sigur Englendinga á Azteca Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Neitar því að leikmennirnir sínir hafi notað Viagra Segja hegðun Paragvæ til skammar Trump þakkar FIFA fyrir Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Real Madrid staðfestir komu Hollendingsins Sjá meira