Máttu ekki fagna titlinum strax Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2013 06:00 Roberto Martínez, knattspyrnustjóri Wigan, með bikarinn. Mynd/Nordic Photos/Getty
Davíð vann svo sannarlega Golíat í úrslitaleik enska bikarsins um helgina þegar Wigan fagnaði sínum fyrsta titli í 81 árs sögu félagsins með því að vinna 1-0 sigur á stórstjörnuliði Manchester City á Wembley-leikvanginum. Titlalaust tímabil hjá City gæti jafnframt þýtt endalok Ítalans Robertos Mancini sem stjóra félagsins. Það var varamaðurinn Ben Watson sem skoraði sigurmarkið með skalla í uppbótartíma eftir hornspyrnu Shauns Maloney. Þetta var eina skot Wigan á markið í leiknum og margir líktu markinu við sigurmark Lawrie Sanchez fyrir Wimbledon á móti Liverpool í bikarúrslitaleiknum 1988. Í það minnsta eru þetta tveir af óvæntustu bikarsigrum í sögu þessarar fornfrægu keppni. Þetta var því mjög stór stund og draumur að rætast fyrir Dave Whelan, stjórnarformann Wigan, sem á mikið í uppgangi félagsins. „Við eigum enn eftir óklárað verkefni því það er leikur á þriðjudaginn og leikur á sunnudaginn,“ sagði Dave Whelan en Wigan situr í fallsæti og berst fyrir lífi sínu í deildinni. Bikarmeistarar hafa aldrei fallið úr deildinni. „Strákarnir gera sér vel grein fyrir því að þeir fara allir strax heim og það verða engin fagnaðarlæti í kvöld. Það verður æfing strax á morgun (í gær) því það eru tveir risaleikir fram undan. Það eru allir á sömu blaðsíðu og við ætlum ekki að fagna fyrr á sunnudaginn kemur,“ sagði Whelan og liðið var sett í áfengisbann. „Það verður ekkert kampavín og þeir fá ekki að drekka neitt. Roberto er Roberto og við ætlum að fagna þegar við höfum haldið sæti okkar í ensku úrvalsdeildinni á sunnudagskvöldið,“ sagði Whelan við Sky Sports.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sport Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira