Erlent

N-Kórea hótar kjarnorkuárás

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Ekki er talið að Norður-Kórea ráði yfir nægilega fullkomnum búnaði til að standa við hótanirnar.
Ekki er talið að Norður-Kórea ráði yfir nægilega fullkomnum búnaði til að standa við hótanirnar. nordicphotos/AFP
Norðurkóreski herforinginn Kang Pyo Yong sagði landsmönnum sínum í gær að hernum væri ekkert að vanbúnaði að skjóta langdrægu flugskeyti með kjarnorkusprengju á Bandaríkin.

„Þegar við sprengjum, þá verður Washington-borg, þessu vígi illskunnar, sökkt ofan í eldhaf,“ sagði Kang stuttu áður en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til að ræða viðbrögð við kjarnorkutilraunum Norður-Kóreu.

Öryggisráðið samþykkti einróma að herða refsiaðgerðir gegn landinu. Fulltrúi Kínverja greiddi atkvæði með þessu, en Kína hefur lengi verið helsta vinaríki Norður-Kóreu á alþjóðavettvangi.

Ekki er talið að Norður-Kórea hafi yfir nægilega fullkomnum búnaði að ráða til að geta staðið við hótanirnar. Á hinn bóginn þykir fullvíst að Norður-Kóreumenn ráði við að smíða nokkrar einfaldar kjarnorkusprengjur, sem gætu valdið verulegu tjóni í nágrannaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×