Brann í bústað eftir harðan skotbardaga 14. febrúar 2013 06:00 Lögreglan í Los Angeles. Yfirmenn á leið til blaðamannafundar. nordicphotos/AFP
Christopher Dorner brann inni í fjallabústað eftir skotbardaga við lögreglu, tíu dögum eftir að hann framdi fyrstu morðin. Lögreglan hafði leitað hans á þessum slóðum síðan á fimmtudag, þegar bifreið hans fannst brunnin og yfirgefin á bílastæði í San Bernardino-fjöllunum, skammt utan við Los Angeles. Á mánudag komst lögreglan svo á sporið þegar Dorner stal bifreið. Eftir eltingarleik og árekstur þar sem skipst var á skotum komst Dorner undan á hlaupum. Nokkru síðar umkringdi lögregla fjallabústað, þar sem hann hafði komið sér fyrir. Enn kom til skotbardaga, sem kostaði einn lögreglumann lífið en annar særðist illa. Á endanum kviknaði í bústaðnum, sem var orðinn mettaður af táragasi. Þegar eldurinn var að mestu kulnaður fannst í bústaðnum brunnið lík. Í fjölmiðlum vestan hafs og austan hefur vaknað grunur um að lögreglan hafi vísvitandi kveikt í bústaðnum með því að nota mikið af táragasi, sem vitað er að kviknað getur í. Birtar hafa verið orðréttar tilvitnanir í samtöl lögreglumanna, þar sem talað er um að „brenna kvikindið“. Í margra blaðsíðna yfirlýsingu, sem Dorner hafði birt á Facebook-síðu sinni, sagðist hann búast við því að deyja í lokaátökum við lögregluna. Hann lýsti þar yfir stríði gegn lögreglunni í Los Angeles og hótaði að drepa fjölda fólks til að vekja athygli á málstað sínum. Hann var ósáttur við að hafa verið vikið úr starfi árið 2009, stuttu eftir að hann sakaði starfsfélaga sinn um að hafa beitt ofbeldi við handtöku. Í yfirlýsingunni sakar hann lögregluna í Los Angeles um kynþáttafordóma og fullyrti að ekkert hefði breyst síðan hópur lögreglumanna misþyrmdi blökkumanninum Rodney King árið 1991, en sjálfur var Dorner dökkur á hörund. Alls hefur tíu daga hefndarherferð Dorners kostað fjögur líf, auk þess sem nokkrir hafa særst illa. Hann náði því fram að lögreglan í Los Angeles ákvað að hefja nýja rannsókn á tildrögum þess að honum var sagt upp á sínum tíma. Óvíst er þó hvað kemur út úr þeirri rannsókn. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fleiri fréttir Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Sjá meira