Erlent

Ástvinir syrgja á Spáni

Ástvinir bíða frétta.
Ástvinir bíða frétta. Mynd/AP
Enn hafa ekki fundist fullnægjandi skýringar á lestarslysinu við Santiago de Compostella í gær.

Að minnsta kosti einn farþegi hefur fullyrt að lestin hafi virst fara allt of hratt í beygju rétt áður en ekið var inn á lestarstöðina.

Slysið kostaði að minnsta kosti 78 manns lífið. Þar af fundust 73 látnir á slysstaðnum en fjórir létu lífið á sjúkrahúsi skömmu síðar. Einn annar hefur einnig látist, en ekki er ljóst hvar.

Þá slösuðust rúmlega 140 manns að auki, sumir þeirra alvarlega.

Bráðabirgðalíkhús hefur verið sett upp á íþróttaleikvangi skammt frá. Þar fyrir utan komu ættingjar og aðrir ástvinir hinna látnu saman í morgun.

Þetta er mannskæðasta lestarslys Spánar áratugum saman. Síðast var sambærilegt slys árið 1972, þegar 86 manns fórust og 112 særðust í árekstri járnbrautarlestar og farþegaflutningabifreiðar á suðvestanverðum Spáni.

Lestin sögð hafa verið á allt of miklum hraða.Mynd/AP
Þótt orsök slyssins sé enn ekki orðin ljós, þá hafa spænsk yfirvöld útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, er fæddur í Santiago de Compostella, pílagrímaborginni í Galicíu á norðvesturhorni landsins. 

Hann hélt þangað í morgun, skoðaði slysstaðinn og ræddi við björgunarfólk. Síðan hélt hann á sjúkrahús þar sem hinir slösuðu voru.

Ákveðið var að fella niður helgiathafnir í Santiago de Compostella í dag, en þar er 25. júlí ár hvert haldinn hátíðlegur á degi heilags Jakobs.

„24. júlí verður framvegis ekki aðfangadagur hátíðarhalda heldur minningardagur um einn sorglegasta daginn í sögu Galicíu,” sagði Rajoy í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×