Ástvinir syrgja á Spáni 25. júlí 2013 12:30 Ástvinir bíða frétta. Mynd/AP
Enn hafa ekki fundist fullnægjandi skýringar á lestarslysinu við Santiago de Compostella í gær. Að minnsta kosti einn farþegi hefur fullyrt að lestin hafi virst fara allt of hratt í beygju rétt áður en ekið var inn á lestarstöðina. Slysið kostaði að minnsta kosti 78 manns lífið. Þar af fundust 73 látnir á slysstaðnum en fjórir létu lífið á sjúkrahúsi skömmu síðar. Einn annar hefur einnig látist, en ekki er ljóst hvar. Þá slösuðust rúmlega 140 manns að auki, sumir þeirra alvarlega. Bráðabirgðalíkhús hefur verið sett upp á íþróttaleikvangi skammt frá. Þar fyrir utan komu ættingjar og aðrir ástvinir hinna látnu saman í morgun. Þetta er mannskæðasta lestarslys Spánar áratugum saman. Síðast var sambærilegt slys árið 1972, þegar 86 manns fórust og 112 særðust í árekstri járnbrautarlestar og farþegaflutningabifreiðar á suðvestanverðum Spáni.Lestin sögð hafa verið á allt of miklum hraða.Mynd/APÞótt orsök slyssins sé enn ekki orðin ljós, þá hafa spænsk yfirvöld útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, er fæddur í Santiago de Compostella, pílagrímaborginni í Galicíu á norðvesturhorni landsins. Hann hélt þangað í morgun, skoðaði slysstaðinn og ræddi við björgunarfólk. Síðan hélt hann á sjúkrahús þar sem hinir slösuðu voru. Ákveðið var að fella niður helgiathafnir í Santiago de Compostella í dag, en þar er 25. júlí ár hvert haldinn hátíðlegur á degi heilags Jakobs. „24. júlí verður framvegis ekki aðfangadagur hátíðarhalda heldur minningardagur um einn sorglegasta daginn í sögu Galicíu,” sagði Rajoy í morgun.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira