Erlent

Mannréttindadómstóllinn nokkuð sáttur við Khodorkovskí-réttarhöldin

Khodorkovskí í réttarsalnum árið 2010 ásamt Platon Lebedev, viðskiptafélaga sínum.
Khodorkovskí í réttarsalnum árið 2010 ásamt Platon Lebedev, viðskiptafélaga sínum. Nordicphotos/AFP
Mannréttindadómstóll Evrópu segir ekkert benda til þess að réttarhöldin yfir auðkýfingnum Mikhaíl Khodorkovskí hafi verið pólitísk, enda þótt einstaka embættismenn virðist hafa haft sínar ástæður til að ýta málinu áfram.

Dómstóllinn gagnrýnir að þeir Khodorkovskí og Platon Lebedev, viðskiptafélagi hans, hafi verið sendir til afplánunar lengst austur í Síberíu, enda búi fjölskyldur þeirra í Moskvu.

Einnig segir dómstóllinn ósanngjarnt að Khodorkovskí hafi verið krafinn um  háar fjárhæðir vegna vanskila á sköttum.

Að öðru leyti gerir hann ekki athugasemdir við réttarhöldin, sem hafa verið gagnrýnd harðlega víða um heim fyrir að Vladmír Pútín forseti hafi staðið á bak við þau.

Í úrskurðinum segir að „þótt margt bendi til þess að sumir embættismenn hafi haft sínar eigin ástæður til þess að þrýsta” á um réttarhöldin, þá „nægði það ekki til að draga þá ályktun að stefnandi hefði að öðrum kosti ekki verið sakfelldur.”

Khodorkovskí var einn auðugasti maður Rússlands. Árið 2005 hófust réttarhöld ggn honum vegna skattsvika og hlaut hann níu ára fangelsisdóm. Aftur hófust réttarhöld árið 2010 fyrir þjófnað og peningaþvætti, og hlaut hann 13 ára dóm fyrir þau brot. Sá dómur var síðar styttur um tvö ár og á hann að losna úr haldi í október á næsta ári.

Karinna Moskalenko, lögmaður Khodorkovskís, segist engu að síður ánægð með úrskurð Mannréttindadómstólsins. Hann muni verða til þess að sakfellingin verði felld niður í samræmi við rússnesk lög.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×