Mannréttindadómstóllinn nokkuð sáttur við Khodorkovskí-réttarhöldin 25. júlí 2013 10:18 Khodorkovskí í réttarsalnum árið 2010 ásamt Platon Lebedev, viðskiptafélaga sínum. Nordicphotos/AFP
Mannréttindadómstóll Evrópu segir ekkert benda til þess að réttarhöldin yfir auðkýfingnum Mikhaíl Khodorkovskí hafi verið pólitísk, enda þótt einstaka embættismenn virðist hafa haft sínar ástæður til að ýta málinu áfram. Dómstóllinn gagnrýnir að þeir Khodorkovskí og Platon Lebedev, viðskiptafélagi hans, hafi verið sendir til afplánunar lengst austur í Síberíu, enda búi fjölskyldur þeirra í Moskvu. Einnig segir dómstóllinn ósanngjarnt að Khodorkovskí hafi verið krafinn um háar fjárhæðir vegna vanskila á sköttum. Að öðru leyti gerir hann ekki athugasemdir við réttarhöldin, sem hafa verið gagnrýnd harðlega víða um heim fyrir að Vladmír Pútín forseti hafi staðið á bak við þau. Í úrskurðinum segir að „þótt margt bendi til þess að sumir embættismenn hafi haft sínar eigin ástæður til þess að þrýsta” á um réttarhöldin, þá „nægði það ekki til að draga þá ályktun að stefnandi hefði að öðrum kosti ekki verið sakfelldur.” Khodorkovskí var einn auðugasti maður Rússlands. Árið 2005 hófust réttarhöld ggn honum vegna skattsvika og hlaut hann níu ára fangelsisdóm. Aftur hófust réttarhöld árið 2010 fyrir þjófnað og peningaþvætti, og hlaut hann 13 ára dóm fyrir þau brot. Sá dómur var síðar styttur um tvö ár og á hann að losna úr haldi í október á næsta ári. Karinna Moskalenko, lögmaður Khodorkovskís, segist engu að síður ánægð með úrskurð Mannréttindadómstólsins. Hann muni verða til þess að sakfellingin verði felld niður í samræmi við rússnesk lög.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira