Enski boltinn

Poyet hættir ef völdin verða tekin af honum

Gus Poyet.
Gus Poyet.
Gus Poyet, stjóri Sunderland, er ekki hrifinn af því að stjórnarmenn skipti sér af leikmannamálum og taki fram fyrir hendurnar á sér.

Hann hefur komið þeim skilaboðum skýrt á framfæri að hann muni ekki sætta sig við að stjórnarmenn kaupi menn til félagsins sem hann vill ekki fá.

"Segjum sem svo að það komi leikmaður til félagsins sem ég vildi ekki fá þá er ég farinn," sagði Poyet grjótharður.

Hann er að skoða styrkingar í janúarglugganum með yfirmönnum félagsins.

"Íþróttastjórar eru í öllum félögum. Samstarfið hefur gengið vel hingað til og vonandi verður það þannig áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×