Erlent

Ron Jeremy snýr aftur - útskrifaður af spítala

Íslandsvinurinn og klámmyndaleikarinn Ron Jeremy hefur verið útskrifaður af spítala eftir að hann gekkst undir aðgerð vegna slagæðargúlps nærri hjarta í lok janúar.

Jeremy, sem er 59 ára gamall, hafði kvartað yfir verkjum í brjósti og ákvað að láta lækni kíkja á sig. Þá kom slagæðargúlpurinn í ljós og var hann umsvifalaust settur undir hnífinn.

Klámmyndaleikarinn heldur nú til á hóteli í Hollywood. „Ég var mjög nærri dauðanum. Ég hef greinilega mjög mikinn vilja til að lifa," segir hann.

Á meðan hann lá á spítalanum missti hann 20 kíló og ætlar hann að nýta það í að lifa heilsusamlegra líferni. „Að borða hollan mat er leiðinlegt, en það heldur í manni lífinu. Pabbi er 94 ára gamall og enn í fullu fjöri. Hann er mjög reiður út í mig að hafa orðið svona feitur, hann grínast með það að foreldrar mínir hafi gefið mig fullkominn líkama - en ég hafi klúðrað því algjörlega," segir Jeremy.

Klámmyndastjarnan á von á því að fara aftur í vinnuna á næstu mánuðum.

Jeremy hefur leikið í yfir 2000 klámmyndum á yfir 40 ára ferli sem klámmyndastjarna. Þá hefur hann einnig leikið í venjulegum kvikmyndum, þáttum og raunveruleikaþáttum.

Ron Jeremy heiðraði Íslendinga með nærveru sinni árið 2002 þegar heimildarmyndin Porn Star: The Legend of Ron Jeremy var sýnd í Háskólabíói.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×