Viðræður á áætlun þrátt fyrir deilur um landtöku Þorgils Jónsson skrifar 13. ágúst 2013 13:21 Landtaka Ísraelsmanna á hernumdu svæðunum hefur valdið mikilli reiði meðal Palestínumanna. NordicPhotos/AFP
Friðarsamningaviðræður milli Ísraels og Palestínu munu hefjast í fyrramálið eins og til stóð, eftir að ekkert hefur þokast í samkomulagsátt síðustu fimm ár. Ákvörðun Ísraels í gær um að heimila byggingu 3.100 íbúða á hernumdu svæðunum á Vesturbakka Jórdanar olli talsverðum úlfaþyt, en ekki viðræðuslitum. Ísraelsk stjórnvöld vörðu ákvörðun sína með þeim rökum að þau svæði sem um ræddi í þessu tilviki hefðu aldrei verið innifalin í mögulegu samkomulagi um skiptingu landsvæðis. Viðræðurnar snúast um að ná lendingu um útfærslu hugmynda um sjálfstætt ríki Palestínu, en landtaka Ísraela setur strik í reikninginn þar sem Palestínumenn neituðu lengi að hitta Ísrael á meðan slíkt væri enn stundað. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði þó milligöngu um samkomulag sem kveður á um að Ísrael sleppi 104 Palestínskum föngum. Landtökufólki hefur fjölgað mjög á Vesturbakkanum síðustu ár. Árið 2010 voru þeir um 311.000 en um þessar mundir telja þeir um 367.000. Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna, varaði Ísraela við að feta áfram þessa braut. „Ef Ísraelsstjórn heldur að hún geti í hverri viku stigið yfir rauðu línurnar varðandi landtöku, þá eru þeir að boða það að samningaviðræðurnar geti ekki haldið áfram.“
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira