Varnarleikurinn varð okkur að falli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. júní 2013 22:26 „
Við gerðum okkur seka um slæm mistök, sérstaklega í hornum sem ég hafði lagt mikla áherslu á að stöðva,“ sagði Lars Lagerbäck í leikslok. „Mér fannst liðið í heild verjast illa ólíkt því sem við gerum venjulega. Slóvenar fengu líka góð færi í fyrri hálfleiknum og það kom mér á óvart hve opinn hálfleikurinn var,“ sagði Svíinn. Lagerbäck benti á að Ísland hefði skapað sér gnótt færa. Þrjú strax á upphafsmínútunum en þau hefði ekki tekist að nýta. Sömu sögu væri að segja um færi sem sköpuðust í síðari hálfeiknum. Sá sænski sagði fjórða markið hafa komið eftir slæman varnarleik af hálfu íslenska liðsins. „Þá vorum við byrjaðir að taka áhættu. Því miður gagnast sjaldnast að taka áhættu eins og kom berlega í ljós í kvöld.“ Þriðja mark Slóvena kom eftir hornspyrnu. Aðspurður hvað hefði farið úrskeiðis í markinu sagði Svíinn: „Við spilum svæðisvörn í hornum en það réðst enginn á boltann. Mér sýndist boltinn fara yfir hausinn á Helga Val og þá átti einhver að vera mættur til að gera árás á boltann.“ Albanía og Noregur skildu jöfn í hinum leik kvöldsins. Svíinn var ánægður með úrslitin. „Ég sagði leikmönnum frá því að þau úrslit væru jákvæð,“ sagði Lagerbäck á skemmtilegri nótum. Hann lagði áherslu á að riðillinn væri galopinn og öll liðin, nú líka Slóvenía, gætu nælt í annað sætið.
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Ósáttur við gula spjald Kolbeins Kolbeinn Sigþórsson, framherji Íslands, nældi sér í gult spjald í síðari hálfleiknum á kjánalegan hátt. 7. júní 2013 22:17 Aron Einar fluttur á sjúkrahús Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór úr axlarlið snemma í síðari hálfleik. Stöðva þurfti leikinn í töluverðan tíma áður en hann var borinn af velli sárþjáður. 7. júní 2013 21:58 Emil: Vorum ekki nógu góðir "Þetta eru auðvitað vonbrigði. Það er alltaf leiðinlegt að tapa og þá sérstaklega eins og við gerum í dag. Þetta var hálf klaufalegt,“ sagði Emil Hallfreðsson eftir ósigurinn gegn Slóvenum í kvöld. 7. júní 2013 22:01 Sigur okkar var sanngjarn Srečko Katanec, landsliðsþjálfari Slóvena, var hæstánægður með 4-2 sigurinn á Íslendingum á Laugardalsvelli í kvöld. 7. júní 2013 22:04 Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Stefnir í spennandi toppbaráttu Íslendinganna Enn með fullt hús og spilað 46 leiki án taps Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Guðný fagnaði sigri með fimm mánaða dóttur og fékk kórónuna Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Fámáll um orðrómana Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ „Markið hefði ekki átt að standa“ „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Orri og félagar steinlágu fyrir Atletico Madrid Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ Sjá meira
Ósáttur við gula spjald Kolbeins Kolbeinn Sigþórsson, framherji Íslands, nældi sér í gult spjald í síðari hálfleiknum á kjánalegan hátt. 7. júní 2013 22:17
Aron Einar fluttur á sjúkrahús Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór úr axlarlið snemma í síðari hálfleik. Stöðva þurfti leikinn í töluverðan tíma áður en hann var borinn af velli sárþjáður. 7. júní 2013 21:58
Emil: Vorum ekki nógu góðir "Þetta eru auðvitað vonbrigði. Það er alltaf leiðinlegt að tapa og þá sérstaklega eins og við gerum í dag. Þetta var hálf klaufalegt,“ sagði Emil Hallfreðsson eftir ósigurinn gegn Slóvenum í kvöld. 7. júní 2013 22:01
Sigur okkar var sanngjarn Srečko Katanec, landsliðsþjálfari Slóvena, var hæstánægður með 4-2 sigurinn á Íslendingum á Laugardalsvelli í kvöld. 7. júní 2013 22:04