Moyes: Rooney er einstakur leikmaður Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2013 11:30 Nordic Photos / Getty Images
David Moyes ætlar að ræða við Wayne Rooney áður en ákvörðun verður tekin um framtíð kappans sem fór nýlega fram á sölu frá Manchester United. Moyes mun í sumar taka við starfi knattspyrnustjóra United af Sir Alex Ferguson. Rooney var ekki í leikmannahópi United í lokaleik liðsins undir stjórn Ferguson á Old Trafford, en liðið vann þá 2-1 sigur á Swansea. Moyes þekkir Rooney vel enda hóf sá síðarnefndi feril sinn hjá Everton. Rooney spilaði sinn fyrsta leik í ágúst árið 2002 en það var Moyes sem gaf honum það tækifæri. Tveimur árum síðar var Rooney seldur til United fyrir 20 milljónir punda. Samkvæmt enskum fjölmiðlum mun Moyes þegar hafa ráðfært sig vil Ferguson og Ryan Giggs, leikmann United, um stöðu Rooney. Hann tjáði sig svo opinberlega um Rooney í gær. „Hann var þegar orðinn einstakur leikmaður þegar hann fór frá Everton. Við vorum stundum agndofa yfir þeim hlutum sem hann gat gert á æfingum,“ sagði Moyes. „Hann er einn af síðustu götuboltastrákunum. Eftir æfingu átti hann það til að fara út að leika sér með vinum sínum án þess að hugsa sig tvisvar um - þó það væri ekki nema til að sparka bolta utan í vegg.“ „Sú menning hefur farið minnkandi en ég þekki hana vel frá minni æsku í Glasgow. Ég hef ekki unnið með fleiri slíkum leikmönnum síðan.“
Enski boltinn Mest lesið Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Formúla 1 Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Enski boltinn Sumir hneykslast á hegðun heimsmeistarans Sport Mourinho grætti Cristiano Ronaldo í klefanum Fótbolti Ungur leikmaður Metz slasaðist í sprengingunni Fótbolti Öll augu á Ally Pally þegar barist er um sæti í úrslitaleiknum Sport Kemst bakdyramegin inn í sína bestu grein á Ólympíuleikunum Sport Áfall fyrir Heimi Hallgríms og drauminn um að komast á HM Fótbolti Giftu sig á gamlársdag Handbolti Varar íþróttafólk við ákveðinni tegund áfengis Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem voru skoruð á nýársdag Færir sig um set í Lundúnum Skilur baulið hjá stuðningsmönnum vel Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Sunderland hjálpaði Arsenal með því að taka stig af Man. City „Mjög svekkjandi“ Líklegast að Chelsea ráði stjóra Strassborg Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Bitlausir meistarar byrjuðu árið á því að tapa stigum á heimavelli Arsenal græddi á mistökum dómarans í 1-0 sigrinum á Everton Sjáðu Mateta skora fyrsta mark ársins 2026 Biðin mikla hjá Unai Emery tók aðeins nokkrar sekúndur Tók báða Íslendingana út af í hálfleik „Ekki jólin sem ég bjóst við“ Andri Lucas missti af þriðja leiknum í röð og áfram markaleysi án hans Aganefndin í fríi og Romero fær að spila í dag Chelsea búið að reka Enzo Maresca Slá því upp að Maresca gæti verið rekinn frá Chelsea í dag Hvað á Liverpool að gera með Mo Salah og Alexander Isak? Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik „Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni“ Liðið sem gerir stólpagrín að xG Sjá meira