Cardiff grátlega nálægt sigri - Sunderland jafnaði í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2013 00:01 Jack Colback fagnar hér jöfnunarmarki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City voru hársbreidd frá því að landa sigri á móti Sunderland í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Cardiff komst í 2-0 í leiknum en Sunderland skoraði tvö mörk á síðustu sjö mínútum leiksins. Varamaðurinn Jack Colback skoraði jöfnunarmark Sunderland á fimmtu mínútu í uppbótartíma og aðeins nokkrum sekúndum síðar var leikurinn flautaður af. Colback hafði heppnina með sér því skotið fór af varnarmanni og í markið. Cardiff var mun betra liðið í leiknum og spilaði frábærlega sérstaklega fyrsta hálftímann en tveir varamenn Sunderland áttu mikinn þátt í því að breyta leiknum. Malky Mackay var rekinn sem knattspyrnustjóri Cardiff fyrir helgi en liðið var búið að tapa sannfærandi í síðustu leikjum sínum. David Kerslake og Joe McBride stýrðu Cardiff-liðinu í leiknum og tóku þá ákvörðun að setja íslenska landsliðsfyrirliðann Aron Einar Gunnarsson á bekkinn. Aron Einar kom inn á 78. mínútu leiksins þegar Cardiff var 2-0 yfir. Jordon Mutch skoraði fyrra mark Cardiff strax á 6. mínútu og lagði síðan seinna markið upp fyrir Fraizer Campbell á 58. mínútu en Fraizer Campbell hafði einmitt átt stoðsendinguna í fyrra markinu. Varamaðurinn Steven Fletcher minnkaði muninn á 83. mínútu en David Marshall, markvörður Cardiff, varði oft vel í lokin og sá næstum því til þess að Cardiff landaði öllum þremur stigunum. Cardiff City er í 16. sæti með átján stig, tveimur stigum á undan Fulham sem er í síðasta fallsætinu. Sunderland er á botni deildarinnar með fjórtán stig.Jack Colback jafnar metin og tryggir Sunderland eitt stig.Mynd/NordicPhotos/GettySteven Fletcher minnkar muninn.Mynd/NordicPhotos/GettyFraizer Campbell kemur Cardiff í 2-0.Mynd/NordicPhotos/GettyJordon Mutch fagnar fyrsta marki leiksins.Mynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Sjá meira