Huddlestone fagnaði með klippingu | Úrslit dagsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2013 00:01 Huddlestone bregður á leik í fagnaðarlátunum. Reikna má með honum stuttklipptum í næsta leik Hull. Mynd/Heimasíða FIFA
Hull tók Fulham í kennslustund á KC-vellinum í dag en meiri spenna var í viðureign Aston Villa og Swansea á Villa Park. Heimamenn í Hull voru mun sterkari aðilinn gegn Fulham í dag en mörkin létu þó bíða eftir sér. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Ahmed Al-Muhamadi á 49. mínútu og flóðgáttirnar opnuðust í kjölfarið. Robert Koren skoraði á 59. mínútu og þremur mínútum síðar var staðan orðin 3-0 eftir mark George Boyd. Afmælisbarnið Tom Huddlestone skoraði svo fjórða markið með skoti utan teigs á 66. mínútu. Huddlestone fór á kostum á miðjunni hjá Hull og var besti maður vallarins á 27. ára afmælisdaginn. Huddlestone ætlaði ekki að klippa hár sitt fyrr en hann skoraði en markið var hans fyrsta síðan hann skoraði fyrir Tottenham gegn Arsenal í apríl 2011. Veislunni á KC-vellinum þar þó ekki lokið. Matty Fryatt skoraði á 73. mínútu og Robert Koren sitt annað mark sex mínútum fyrir leikslok. Hull er á góðu róli um miðja deild með 23 stig en Fulham er í 18. sæti með 16 stig. Gabriel Agbonlahor skoraði sitt fyrsta mark á Villa Park í tæpt ár þegar Aston Villa komst yfir á heimavelli gegn Swansea eftir sjö mínútur. Fyrirliðinn fékk boltann einn gegn Gerhard Tremmel í markinu og kláraði færið vel. Gestirnir frá Wales, sem enn spila án Michu sem er frá vegna meiðsla, jöfnuðu á 37. mínútu. Þá skallaði Roland Lamah boltann í netið á fjærstöng. Swansea var mun meira með boltann í fyrri hálfleiknum en staðan jöfn 1-1 í hálfleik. Hvorugu liðinu tókst að bæta við marki í síðari hálfleik og því fengu liðin eitt stig hvort. Swansea hefur 21 stig um miðja deild og Aston Villa hefur stigi minna tveimur sætum á eftir Swansea.
Enski boltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjá meira