Chelsea tók þriðja sætið af Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2013 13:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea nýtti sér tvö töpuð stig hjá Tottenham fyrr í dag og komst upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-1 sigur á Sunderland á Stamford Bridge í dag. Branislav Ivanović skoraði sigurmarkið á 55. mínútu en hann var sá eini í dag sem skoraði í rétt mark. Chelsea og Tottenham eru nú bæði með 58 stig en Chelsea er ofar á betri markatölu. Þetta var fimmti heimasigur í röð í deildinni og gott gengi á Brúnni ætlar að nýtast liðinu vel í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Paolo Di Canio stýrði Sunderland-liðinu í fyrsta sinn og þetta leit vel út í hálfleik eftir að liðið hans komst í 1-0 rétt fyrir hálfleik eftir sjálfsmark César Azpilicueta. Chelsea jafnaði hinsvegar í upphafi seinni hálfleiks þegar Matthew Kilgallon skoraði í eigið mark. Markið kom eftir laglega sókn þar sem Fernando Torres spilaði stórt hlutverk en spænski framherjinn kom inn á sem varamaður í hálfleik. Það tók Chelsea aðeins sjö mínútur að komast yfir. Branislav Ivanović skoraði þá með laglegri hælspyrnu þegar hann stýrði þá inn skoti Brasilíumannsins David Luiz. Fleiri urðu mörkin ekki og Paolo Di Canio varð því að sætta sig við tap í fyrsta leik. Sunderland hefur nú leikið níu deildarleiki í röð án þess að vinna.
Enski boltinn Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fleiri fréttir Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Sjá meira