450 borgarar hafi fallið í drónaárásum Þorgils Jónsson skrifar 19. október 2013 07:00 Drónaárásir hafa vakið mikla reiði, meðal annars í Pakistan þar sem þessi mynd var tekin í síðasta mánuði. Nordicphotos/AFP
Flugskeytum er skotið úr fjarstýrðum loftförum sem þessum sem beitt hefur verið gegn hryðjuverkahópum. Samkvæmt frumdrögum skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa þó 450 óbreyttir borgarar fallið í slíkum árásum.Fréttablaðið/AP Um 450 óbreyttir borgarar eru taldir hafa fallið í 33 árásum ómannaðra loftfara, sem kallast gjarnan drónar, á vegum bandarískra stjórnvalda. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um mannfall í drónaárásum sem verið er að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Síðustu misseri hafa Bandaríkjamenn í síauknum mæli reitt sig á loftför þessi í baráttu við hryðjuverkamenn í Pakistan, Afganistan og Jemen. Þessi nálgun hefur enda reynst áhrifarík að því marki að tekist hefur að fella fjölmarga forvígismenn hryðjuverkahópa, ekki síst hópa sem tengjast al-Kaída hryðjuverkanetinu, án þess þó að hætta lífi hermanna. Á móti kemur fyrrnefnt mannfall í hópi óbreyttra borgara, sem hefur valdið mikilli úlfúð í þeim ríkjum sem um ræðir. Meðal annars var þetta eitt af helstu kosningamálunum í þingkosningunum í Pakistan fyrr á árinu. Bandaríkjastjórn hefur hingað til ekki viljað upplýsa um umfang eða fjölda aðgerða og ber við þjóðaröryggissjónarmiðum. Í skýrslunni segir meðal annars að þátttaka leyniþjónustunnar, CIA, í drónaverkefnum hafi skapað „nær óyfirstíganlegar hindranir í átt að gagnsæi“. Löndum sem stunda árásir með drónum, Bandaríkjunum, Bretlandi og Ísrael, beri skylda til að upplýsa um mannfall í árásum sínum og sýna fram á lagalega réttlætingu fyrir þeim. Ben Emmerson, sem er aðalhöfundur skýrslunnar, segir slíkt ekki geta viðgengist til langframa og kallar eftir frekara gegnsæi af hálfu Bandaríkjamanna. Slíkt sé lykilatriði í því að fórnarlömbum slíkra árása gefist færi á að leita réttar síns. Stjórnvöld í Pakistan hafa tjáð Sameinuðu þjóðunum að 400 óbreyttir borgarar hið minnsta hafi fallið í drónaárásum þar í landi frá árinu 2011, þrjátíu í Afganistan og 21 í Jemen. Emmerson segir í skýrsludrögunum að árásirnar brjóti einnig gegn fullveldi Pakistans, þar sem stjórnvöld þar í landi hafa mótmælt þeim opinberlega. Þetta þykir þó ekki svo einfalt, þar sem almennt er talið að sumar árásirnar hafi verið samþykktar af mönnum í efstu lögum stjórnkerfisins og hersins. Fullkláruð skýrsla verður kynnt fyrir Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Sjá meira