Enski boltinn

Eriksen frá næsta mánuðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eriksen, til hægri, fagnar marki í leik með Tottenham ásamt Kyle Naughton.
Eriksen, til hægri, fagnar marki í leik með Tottenham ásamt Kyle Naughton. Nordic Photos / Getty Images
Svo gæti farið að Daninn Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, verði frá keppni fram að jólum eftir að hann meiddist í landsleik í gær.

Danir unnu 2-1 sigur á Norðmönnum í vináttulandsleik í Herning í gær en Eriksen haltraði af velli undir lok fyrri hálfleiks, meiddur á ökkla.

„Við vitum ekki hversu lengi hann verður frá - hvort sem það eru fjórar eða sex vikur,“ sagði Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana, eftir leikinn í gær. „Þetta eru slæmar fréttir fyrir hann enda hjá nýju félagi,“ bætti hann við en Eriksen kom til Tottenham í sumar frá Ajax í Hollandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×