Sá eini með yfir helming marka síns liðs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2013 07:00 iAlfreð Finnbogason hefur skorað 19 mörk í 22 deildarleikjum. Mynd/Nordicphotos/Getty
Alfreð Finnbogason hefur skipað sér í sérstöðu meðal leikmanna hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, en Heerenveen-liðið treystir mikið á íslenska landsliðsframherjann, sem er nú annar markahæsti maður deildarinnar með 19 mörk í 23 leikjum. Marco van Basten, þjálfari hollenska liðsins, getur þakkað Alfreð fyrir að liðið hefur fjarlægst fallbaráttuna í undanförnum leikjum. Alfreð hefur skorað 19 af 36 mörkum SC Heerenveen í deildinni á þessu tímabili, sem gerir 53 prósent marka liðsins. Hann er eini leikmaður deildarinnar sem hefur skorað meira en helming marka síns liðs og Alfreð er jafnframt búinn að eiga þátt í 61 prósenti markanna, annaðhvort með því að skora eða leggja upp fyrir félaga sína í liðinu. Alfreð skoraði enn fremur fjögur af sex bikarmörkum Heerenveen-liðsins á þessu tímabili og er því alls með 23 af 42 mörkum Heerenveen í deild og bikar á tímabilinu, sem gera 55 prósent markanna. Sá sem kemst næst Alfreð er Jozy Altidore hjá AZ Alkmaar, en hann hefur skorað 17 af 35 mörkum AZ í deildinni, sem gera 48,6 prósent marka liðsins. Wilfried Bony, markahæsti leikmaður deildarinnar, er síðan í þriðja sætinu, en hann hefur skorað 46 prósent marka Vitesse-liðsins, eða 23 af 50. Mikilvægi marka Alfreðs í undanförnum tveimur leikjum Heerenveen er óumdeilanlegt, en sigurmörk hans í tveimur leikjum í röð hafa séð til þess að Heerenveen hækkaði sig um heil fimm sæti með þessum tveimur sigurleikjum, frá 14. sæti upp í það níunda. Það er reyndar langt upp í áttunda sæti (6 stig), sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í umspili fyrir Evrópudeildina. Alfreð hefur nú aðeins mistekist að skora í tveimur af síðustu ellefu leikjum sínum í hollensku deildinni og í öðrum þeirra spilaði hann aðeins fyrri hálfleikinn eftir að liðið missti mann af velli fyrir hlé. Heerenveen fær topplið PSV í heimsókn um helgina og þar verður róðurinn þungur enda tapaði Heerenveen fyrri leiknum 1-5. Alfreð er búinn að skora í fjórum heimaleikjum í röð og alls í 8 af 10 heimaleikjum tímabilsins. hann er því alltaf líklegur á Abe Lenstra vellinum í Heerenveen.
Fótbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sjá meira