Giggs tilbúinn að hjálpa Moyes Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 18. maí 2013 12:00 Giggs vann 13 Englandsmeistaratitla undir stjórn Sir Alex Ferguson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Reynsluboltinn og goðsögnin Ryan Giggs hjá Englandsmeisturum Manchester United segir að hann og aðrir eldri leikmenn liðsins muni styðja vel við bakið á nýjum knattspyrnustjóra félagsins, David Moyes. Hann segir þó að erfitt verk bíði hans sem arftaka Sir Alex Ferguson. „David Moyes kemur inn í gott umhverfi þar sem fyrir eru góðir leikmenn sem ná vel saman innan sem utan vallar,“ sagði Ryan Giggs við breska dagblaðið Daily Telegraph. „Hann tekur við mjög sterkum hóp sem er í góðri stöðu. „Gallinn er sá að hann er að taka við af sigursælasta knattspyrnustjóra allra tíma. Knattspyrnustjórar taka við yfirleitt við liðum þar sem gengur illa en þetta lið er ekki á niðurleið. Maður veit ekki hvort það sé betra eða verra fyrir David. „Þetta eru góðir drengir í búningsklefanum og hvenær sem knattspyrnustjórinn þarf hjálp þá munu eldri leikmenn liðsins hjálpa. Þannig hafa hlutirnir alltaf gengið fyrir sig á mínum tíma hjá félaginu,“ sagði Giggs. Giggs segir Moyes njóta mikillar virðingar meðal leikmanna Manchester United vegna þess árangurs sem hann náði með Everton á tíma sínum hjá bláklædda liði Liverpoolborgar. „Hann hefur unnið frábært starf þar og maður finnur áþreifanlega fyrir því í hvert skipti sem maður leikur gegn liði hans, það er aldrei auðvelt. „Nokkrir fyrrum leikmenn okkar hafa farið til Everton og notið mikillar velgengni, eins og Tim Howard og Phil Neville. Þeir hafa sagt okkur að hann vinni vel og ætlist til þess sama af leikmönnum sínum. Hann setur markið hátt og það er eitthvað sem við erum vanir að gera,“ sagði Giggs sem leikur sinn síðasta leik undir stjórn Sir Alex Ferguson, eina stjóranum sem hann hefur haft á löngum ferli sínum.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sport Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira