Fara vítaskytturnar á taugum á móti KR? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2013 07:00 Mynd/Daníel
Rúnar Alex Rúnarsson varð nýjasti vítabaninn í markvarðahópi Vesturbæinga á sunnudaginn þegar hann varði víti frá FH-ingnum Davíð Þór Viðarssyni. Staðan var þá 0-0 en KR vann síðan leikinn 3-1 og steig stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum. Vítin eru svo sannarlega að hafa sín áhrif í leikjum KR-liðsins. Á sama tíma og KR-ingar eiga bestu vítaskytturnar í boltanum gengur mótherjum þeirra skelfilega að nýta sín víti gegn þeim. KR-ingar hafa átt mesta vítabanann í Pepsi-deildinni undanfarin fjögur ár (Andre Hansen 2009, Lars Ivar Moldskred 2010 og Hannes Þór Halldórsson 2011 og 2012) og nú er svo komið að mótherjar þeirra hafa aðeins náð að skora úr tveimur af síðustu níu vítaspyrnum sínum í deildinni. Í báðum vítunum sem mótherjum KR tókst að skora úr stóð í markinu ískaldur varamarkvörður – Fjalar Þorgeirsson á móti ÍBV í Eyjum 2012 og Rúnar Alex á móti ÍBV á KR-vellinum 2013. Þeir voru báðir komnir í markið eftir að Hannes Þór hafði skömmu áður verið rekinn út af með rautt spjald. Mótherjar Vesturbæinga hafa því frá og með júní 2011 aðeins nýtt 22 prósent víta sinna (9/2) en á sama tíma hafa vítaskyttur KR-ingar aðeins klikkað á einu af sautján vítum sínum. Vítanýting KR-liðsins á þessum tíma er því 94 prósent eða 72 prósentum betri en mótherja þeirra. KR-liðið er enn fremur með 14 vítamörk í plús á þessu tímabili. Kjartan Henry Finnbogason hefur skorað úr níu af þessum sextán vítum en Bjarni Guðjónsson (3/3) og Óskar Örn Hauksson (2/2) eru líka með 100 prósenta vítanýtingu á þessum tíma. Gary Martin er sá eini sem hefur klúðrað víti frá júní 2011 en hann lét Blikann Ingvar Þór Kale verja frá sér í fyrrasumar. Síðustu 9 vítaspyrnur mótherja KR7. júní 2011 Hannes Þór Halldórsson ver frá Matthíasi Vilhjálmssyni, FH29. ágúst 2011 Hannes ver frá Steven Lennon, Fram15. maí 2012 Hannes ver frá Tryggva Guðmundssyni, ÍBV16. júní 2012 Viðar Örn Kjartansson, Selfossi, skýtur í stöng á móti Hannesi21. júlí 2012 Hannes ver frá Halldóri Orri Björnssyni, Stjörnunni8. ágúst 2012 Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV, skorar framhjá Fjalari Þorgeirssyni.21. júlí 2013 Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni, skýtur yfir á móti Hannesi11. ágúst 2013 Gunnar Már Guðmundsson, ÍBV, skorar framhjá Rúnari Alex Rúnarssyni.25. ágúst 2013 Rúnar Alex ver frá Davíð Þór Viðarssyni, FH
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna Sport „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Fleiri fréttir „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Sjá meira