Enn eitt jafntefli West Ham og West Brom Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2013 00:01 Leikmenn West Ham fagna marki Modibo Maiga í dag. Nordicphotos/Getty
Boðið var til markaveislu þegar West Ham og West Brom skildu jöfn 3-3 í hádegisleiknum í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Heimamenn á Boylen Ground fengu óskabyrjun þegar Joe Cole kom uppeldisfélagi sínu á bragðið með skoti af stuttu færi. Heimamenn leiddu þar til fimm mínútur lifðu hálfleiksins. Þá tók Nicolas Anelka sig til og skoraði tvívegis á fimm mínútum og sá til þess að gestirnir frá Miðlöndum fóru með forskotið inn í leikhlé. Modibo Maiga kom af bekknum í hálfleik og tuttugu mínútum síðar skoraði hann. Skotið var með vinstri fæti og utan teigs en Ben Foster átti að einfaldlega að verja skotið. Ekki batnaði ástandið fyrir Foster þegar hann hirti knöttinn á nýjan leik úr netinu tveimur mínútum síðar. Þá skoraði Kevin Nolan af stuttu færi eftir þunga sókn Hamranna. Stuðningsmenn heimamanna í stúkunni voru enn að blása sápukúlur af fögnuði þegar Saido Berahino jafnaði metin með hnitmiðuðu skoti úr teignum sem fór af stönginni og inn. Jussi Jääskelaäinen hefði líklega átt að gera betur í marki heimamanna. Liðin fengu því eitt stig á mann sem gerir ekki neitt fyrir liðin í töflunni. West Brom er áfram í 15. sæti og West Ham í 19. sæti. Fyrra liðið hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum og hið síðara í síðustu sex. West Brom hefur gert átta jafntefli á leiktíðinni og West Ham fimm.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira