Enski boltinn

Agger var spenntur fyrir því að spila með Barcelona

Greint var frá því síðasta sumar að spænska stórliðið Barcelona væri á eftir danska landsliðsmanninum Daniel Agger sem spilar með Liverpool.

Agger viðurkennir að það hafi verið freistandi tilhugsun að spila fyrir Barcelona en að lokum hafi verið auðvelt að velja Liverpool.

"Ég held að menn verði alltaf spenntir þegar svona mál koma upp á borðið. Þú þarft að vera ómannlegur ef þú verður ekki spenntur fyrir því að spila með Barcelona," sagði Agger.

"Ég verð þó að standa við mitt. Ég skrifaði undir samning og ef félagið vill halda mér þá verð ég hér. Ég get ekki bara skipt um skoðun. Þetta hefði verið allt annað mál ef félagið vildi losna við mig."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×