Enski boltinn

Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppnum

Giroud setur hér boltann í tómt markið eftir glórulaus mistök Boruc.
Giroud setur hér boltann í tómt markið eftir glórulaus mistök Boruc.
Arsenal hefur það náðugt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir flottan 2-0 heimasigur á Southampton í dag.

Eftir rúmar 20 mínútur tók Artur Boruc, markvörður Southampton, þá glórulausu ákvörðun að reyna að sóla Olivier Giroud.

Það gekk ekki betur en svo að Giroud stal af honum boltanum og skoraði í tómt markið. Algjörlega glórulaust hjá Boruc.

Ekkert var svo skorað fyrr en undir lok leiksins er Giroud skoraði úr vítaspyrnu og gulltryggði sigur sinna manna.

Arsenal er með 28 stig á toppnum eða fjórum stigum meira en Liverpool. Southampton er eftir sem áður í þriðja sæti með 22 stig.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×