Enski boltinn

Boruc líkir sjálfum sér við Johan Cruyff

Instagram-myndin hans Boruc.
Instagram-myndin hans Boruc.
Pólski markvörðurinn Artur Boruc, markvörður Southampton, var aðhlátursefni knattspyrnuheimsins í gær eftir að hann gaf mark gegn Arsenal.

Boruc var greinilega ekki að taka markið of mikið inn á sig og gerði grín að markinu í gærkvöldi. Þá ákvað hann að líkja töktum sínum við takta Johan Cruyff og birti mynd á Instagram sem átti að sýna hversu líkir þeir væru.

"Ekkert svo ólíkt. Andskotans samt," skrifaði Boruc með myndinni.

Myndin féll vel í kramið hjá aðdáendum hans en um 3.000 manns höfðu líkað við hana í dag.

Stjóri Southampton segr að Boruc sé enn hans maður þrátt fyrir mistökin stóru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×