Enski boltinn

Phil Jones meiddur í nára

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Phil Jones, leikmaður Manchester United, verður ekki með enska landsliðinu þegar það mætir Þýskalandi í vináttulandsleik á þriðjudaginn.

Jones hlaut meiðsli á nára þegar að England tapaði fyrir Síle á Wembley-leikvanginum á föstudag, 2-0. Hann spilaði sem miðvörður við hlið Gary Cahill en var tekinn af velli á 57. mínútu.

Jones er kominn aftur til Manchester þar sem hann mun gangast undir frekari meðhöndlun.

Talið er líklegt að Phil Jagielka verði í byrjunarliði Englands á þriðjudaginn í stað Jones en Roy Hodgson, þjálfari enska liðsins, er vongóður um að þeir Steven Gerrard, Daniel Sturridge, Kyle Walker og Rickie Lambert geti allir tekið þátt eftir að hafa misst af leiknum gegn Síle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×