Fótbolti

LeBron vill eignast hlut í fótboltaliði Beckham

James og Beckham.
James og Beckham.
Eins og fram hefur komið þá ætlar David Beckham að setja á fót lið í MLS-deildinni frá Miami. Mikill áhugi er á þessu verkefni Englendingsins.

Besti körfuboltamaður heims, LeBron James, er í viðræðum við Beckham um að eignast hlut í félaginu. James spilar fyrir körfuboltalið borgarinnar en það hefur unnið NBA-meistaratitilinn síðustu tvö ár.

"Við David erum orðnir góðir vinir og höfum áhuga á því að vinna saman," sagði James en hann á einnig lítinn hlut í Liverpool. "Ég er búinn að læra um íþróttina og veit núna nákvæmlega hvað er í gangi hverju sinni á vellinum."

Beckham er spenntur fyrir verkefninu.

"Ég held að Miami sé frábær borg fyrir fótboltalið. Það er mikið af ungum leikmönnum hérna og stemning fyrir fótbolta," sagði Beckham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×