Erlent

Lögreglumaður handtekinn vegna hópárásar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Einn vélhjólamannana braut rúðu bílstjóramegin áður en ráðist var á manninn.
Einn vélhjólamannana braut rúðu bílstjóramegin áður en ráðist var á manninn.
Lögreglumaður í New York-borg hefur verið handtekinn vegna meintrar þátttöku í líkamsárás á ökumann Range Rover-bifreiðar.

Árásin átti sér stað þann 29. september í kjölfar þess að ökumaðurinn ók yfir vélhjól á hraðbraut. Hópur vélhjólamanna elti ökumanninn, sem var í bíl sínum ásamt konu og barni, og réðst á manninn þegar hann neyddist loks til að stoppa.

Wojciech Braszczok, 32 ára rannsóknarlögreglumaður sem var ekki á vakt, hefur verið ákærður vegna málsins en honum er gefið að sök að hafa brotið rúðu bílsins og sparkað í hurð hans. Ekki er vitað hvort hann hafi veist að manninum.

Þá er annar lögreglumaður sagður hafa verið í hópi vélhjólamannana og verið er að rannsaka hvort hann hafi gerst brotlegur.

Alls hafa sex manns verið ákærðir vegna árásarinnar en ökumaður bílsins, sem er á fertugsaldri, þurfti aðhlynningu á sjúkrahúsi eftir árásina.

Aðdragandi hennar náðist á myndband sem sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×