Obama segir trúverðugleika í húfi Guðsteinn Bjarnason skrifar 4. september 2013 13:45 Barack Obama og Fredrik Reinfeldt í Stokkhólmi. Mynd/AP
Trúverðugleiki Bandaríkjanna og heimsbyggðarinnar allrar er í húfi, að mati Baracks Obama Bandaríkjaforseta, gagnvart Sýrlandi. „Við verðum að grípa til aðgerða, því ef við gerum það ekki þá erum við í raun að segja: Sá sem kann ekki að skammast sín geti haldið áfram án ótta við refsingu," sagði Obama á blaðamannafundi í Stokkhólmi ásamt Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar. Hann segist enn gera sér von um að Vladimír Pútín Rússlandsforseta snúist hugur, og segir að aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn verði mun áhrifaríkari ef Rússar verða með. Hann sagði hins vegar að erfitt hafi reynst að fá Rússa til að horfast í augu við glæpi Assads Sýrlandsforseta. Pútín hafi ekki fallist á þau rök Bandaríkjamanna, að jafnvel þótt meðal sýrlenskra uppreisnarmanna séu öfl, sem ástæða sé til að hafa áhyggjur af, þá geti stjórn Assads aldrei aftur notið almennrar viðurkenningar í Sýrlandi eftir að hafa framið ofbeldisglæpi gegn þjóðinni. Obama kom til Svíþjóðar í morgun þar sem hann mun í kvöld eiga fund með forsætisráðherrum allra Norðurlandanna. Á morgun tekur hann svo þátt í leiðtogafundi 20 stærstu iðnríkja heims í Rússlandi, þar sem hann hyggst reyna að afla frekara fylgis við áform sín um hernað gegn Sýrlandsstjórn.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Sjá meira