Erlent

Eðlilegt að kúka allt frá þrisvar á dag til þrisvar í viku

„Í flestum tilfellum beita menn þessu rétt og hugsa ekki mikið út í þetta. En þetta getur verið vandamál hjá börnum til dæmis með hægðatregðu og getur fylgt fólki út lífið," segir Einar Stefán Björnsson, prófessor í meltingarlækningum við Háskóla Íslands.

Einar Stefán sat fyrir svörum í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Umræðuefnið var hvort hinn almenni borgari hefði hægðir á rangan hátt, þ.e.a.s. kúkaði vitlaust. Í grein á heimasíðu Siggu Lund er vísað í myndband þar sem bent er á að stærsti hluti fólks í vesturheimi hafi vanið sig á að kúka vitlaust.

„Ég hef svo sem heyrt minnst á þetta áður og hlustaði á lærðan fyrirlestur skurðlæknis í Svíþjóð um árið. Hann benti á að þetta væri töluvert flóknara mál en margir halda, að tæma ristilinn," segir Einar Stefán.

Hann bendir á að myndbandið sem umræðuna má rekja til sé úr smiðju þess sem framleiðir hina meintu lausn við vandanum.

„Maður skal gjalda varhuga við slíkum þegar peningarnir eru komnir inn í þetta," segir Einar Stefán. Aðspurður hvað sé eðlilegt að fólk hafi hægðir oft á dag segir Einar Stefán:

„Meginreglan er sú að allt frá þrisvar á dag til þrisvar í viku er innan eðlilegra marka."

Viðtalið í heild sinni má hlusta á hér fyrir ofan. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið frá framleiðendum Squatty Potty.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×