Söguleg mörk hjá Lampard 11. maí 2013 00:01 Lampard fagnar fyrra marki sínu í dag. Þá jafnaði hann markametið. Mynd / Getty Images
Frank Lampard bætti markamet Chelsea og svo gott sem tryggði liðinu sæti í Meistaradeildinni næsta vetur með tveimur mörkum í 1-2 útisigri á Aston Villa í dag. Tottenham getur jafnað Chelsea að stigum en markamunurinn á milli liðanna er mikill og Meistaradeildarsætið því næstum komið. Villa byrjaði leikinn betur og Christian Benteke kom heimamönnum yfir snemma leiks. Hans 14. mark á árinu og hann hefur skorað langmest í deildinni á þessu ári. Næsti maður er þremur mörkum á eftir. Það blés ekki byrlega fyrir Chelsea undir lok fyrri hálfleiks er Brasilíumaðurinn Ramires lét reka sig af velli eftir að hafa fengið tvö gul spjöld. Hetjan Benteke varð síðan skúrkur er hann lét reka sig af velli rúmum hálftíma fyrir leikslok. Benteke sparkaði þá í John Terry og var vikið af velli. Chelsea var fljótt að nýta sér þessa stöðu og Frank Lampard jafnaði leikinn skömmu síðar. Sögulegt mark hjá Lampard því hann var að jafna markamet Chelsea. Lampard var þarna kominn með 202 mörk eða jafnmörg og Bobby Tambling. Lampard er einnig orðinn fjórði markahæsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar með 165 mörk. Hann er eini miðjumaðurinn á topp tíu listanum. Chelsea vildi fá mark skömmu síðar er boltinn dansaði á línunni. Aðstoðardómarinn ekki sammála en tæpt var það. Lampard bætti síðan markamet Chelsea tveim mínútum fyrir leikslok. Frábært samspil hjá Chelsea endaði með því að Lampard skoraði. Hann lagðist á hnén og þakkaði fyrir sig.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi Handbolti Þjálfari Dana um Ísland: „Nokkrir af bestu handboltamönnum heims“ Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Fótbolti ICE-fulltrúar á Vetrarólympíuleikunum: „Þetta er hersveit sem drepur“ Sport Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti EM í dag: Einn ótrúlegasti sólarhringur í sögu íslenskra íþrótta Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira