Arsenal felldi bikarmeistarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2013 18:15 Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsenal felldi nýkrýnda bikarmeistara Wigan með því að vinna þá 4-1 á Emirates-leikvanginum í kvöld en Wigan-menn urðu að vinna til þess að eiga möguleika á því að bjarga sér í lokaumferðinni. Lukas Podolski skoraði tvö mörk fyrir Arsenal og Santi Cazorla átti þrjár stoðsendingar. Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Arsenal-liðið sem komst aftur upp fyrir Tottenham og í 4. sætið. Arsenal getur þar með tryggt sér sæti í Meistaradeildinni með sigri á Newcastle í lokaumferðinni en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham þurfa bæði að vinna sinn leik og treysta á það að Arsenal tapi stigum. Wigan Athletic er hinsvegar fallið úr deildinni ásamt Queens Park Rangers og Reading og það verður því engin fallbarátta í gangi í lokaumferðinni. Wigan var búið að vera í úrvalsdeildinni frá árinu 2005. Lukas Podolski kom Arsenal í 1-0 á 11. mínútu eftir sofandahátt í Wigan-vörnni. Podolski fékk boltann í markteignum og skallaði hann í markið eftir að hornspyrna Santi Cazorla sigldi í gegn hóp varnarmanna Wigan. Wigan tókst hinsvegar að jafna á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Shaun Maloney skoraði beint úr aukaspyrnu. Wojciech Szczesny komst í boltann en tókst ekki að bjarga marki. Theo Walcott kom Arsenal aftur yfir á 63. mínútu eftir frábæra sendingu Santi Cazorla og þá var eins og Wigan-liðið brotnaði því Arsenal skoraði tvö mörk til viðbótar á næstu átta mínútum. Lukas Podolski skoraði þriðja markið á 68. mínútu eftir að Cazorla skallaði boltann inn fyrir vörnina og Aaron Ramsey skoraði síðan fjórða markið á 71. mínútu eftir stoðsendingu frá Kieran Gibbs.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira