Gylfi hélt lífi í Meistaradeildardraumi Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2013 18:15
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður og tryggði Tottenham 2-2 jafntefli á móti Chelsea á Stamford Bridge í gríðarlega mikilvægum leik í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Leikurinn var frábær skemmtun, bauð upp á fjögur flott mörk og hraðinn var það mikill að leikmenn voru nánast búnir á því á lokamínútunum. Chelsea hefði nánast tryggt sér sæti í Meistaradeildinni með sigri en hefur nú "bara" tveggja stiga forskot á Arsenal (4. sæti) og þriggja stiga forskot á Tottenham (5. sæti) þegar tvær umferðir eru eftir. Fjögur efstu sætin skila sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Tottenham mátti alls ekki tapa þessum leik og sigur hefði gert mikið fyrir liðið en nú verða Gylfi og félagar að treysta á hagstæð úrslit í síðustu tveimur umferðunum. Chelsea var með mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum og komst tvisvar sinnum yfir eftir að Emmanuel Adebayor hafði í millitíðinni jafnað metin með frábæru marki. Gylfi Þór kom inn á sem varamaður fyrir Aaron Lennon á 63. mínútu leiksins og var búinn að skora á 80. mínútu. Leikur Tottenham breyttist heldur betur til hins betra eftir að íslenski landsliðsmaðurinn kom inn á völlinn. Gylfi skoraði markið sitt með hnitmiðuðu skoti eftir að hafa fengið skemmtilega hælsendingu frá Emmanuel Adebayor. Tottenham sótti stíft eftir jöfnunarmarkið en tókst ekki að tryggja sér sigurinn. Gareth Bale fékk aukaspyrnu á kjörstað í uppbótartíma en náði ekki góðu skoti.Það er hægt að sjá mark Emmanuel Adebayor með því að smella hér fyrir ofan.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira