Íslenski boltinn

Sutej samdi við Grindavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Suetj í leik með Keflavík.
Suetj í leik með Keflavík. Mynd/Valli
Varnamaðurinn Alen Sutej er formlega genginn til liðs við Grindavík sem leikur í 1. deildinni nú í sumar.

Þetta kemur fram á Fótbolti.net í dag en Sutej hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu. Hann var samningslaus en síðast var hann á mála hjá FH.

Sutej, sem er slóvenskur, hóf feril sinn á Íslandi með Keflavík árið 2009 en fór þaðan til Hafnarfjarðar tveimur árum síðar. Þrálát meiðsli gerðu það að verkum að hann náði ekki að spila mótsleik með liðinu á tveimur árum sínum þar.

Hann á að baki 48 leiki í deild og bikar hér á landi, alla með Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×