Fótbolti

Neymar hrifinn af bæði Real og Barcelona

Neymar í landsleik.
Neymar í landsleik.
Brasilíumaðurinn Neymar mun væntanlega yfirgefa félag sitt, Santos, eftir HM á næsta ári og er talið næsta víst að hann fari til Barcelona eða Real Madrid.

Leikmaðurinn segist ekki vera búinn að gera upp hug sinn um framtíðina og er hrifinn af báðum félögum.

"Mér líst ekkert betur á annað hvort félagið. Þetta eru bæði frábær félög með stórkostlega sögu. Með báðum liðum spila svo frábærir leikmenn," sagði Neymar.

"Barcelona hefur hrifið heimsbyggðina síðustu ár með sínum fótbolta. Það er enn draumur hjá mér að spila í Evrópu en ég veit ekki hvort það gerist á næstunni. Ég mun taka ákvörðun er ég tel mig vera tilbúinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×