Sigurður Ragnar: Of mikill munur á liðunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. mars 2013 22:45 Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Mynd/Anton
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var eðlilega ekki sáttur við 6-1 tap fyrir Svíum í Algarve-keppninni í Portúgal í kvöld. Þetta var stærsta tap liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars og stærsta tap kvennalandsliðsins í tæp þrettán ár. „Það er hægt að nefna nokkrar ástæður fyrir þessu tapi en heilt yfir var munurinn á milli liðanna einfaldlega of mikill," sagði Sigurður Ragnar við Vísi í kvöld. „Svíar skoruðu mörk sem voru dæmd af vegna rangstöðu og Þóra bjargaði okkur nokkrum sinnum. Það stóð ekki steinn yfir steini hjá okkur í kvöld." Sigurður Ragnar segir að það hafi verið ætlunin að mæta Svíum framarlega á vellinum í kvöld. Sú áætlun brugðist en staðan var orðin 4-0 í hálfleik. „Við hefðum átt að bregðast fyrr við því en við gerðum það í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var örlítið betri hjá okkur en við töpuðum honum samt." Sigurður Ragnar hefur áður gagnrýnt leikmenn sína fyrir að vera ekki í nógu góðu formi. Hann ítrakaði það í kvöld. „Stærsti munurinn á liðunum er líkamlegt form leikmanna. Við höfum spilað við Bandaríkin og Svíþjóð og bæði lið eru klassa fyrir ofan okkur hvað líkamlega þjálfun varðar." „Við höfum rætt þetta við leikmenn en það eru þó auðvitað ekki allir leikmenn sem eru í lélegu standi - nokkrir eru í mjög góðu formi og hafa spilað vel í þessum leikjum. En of margir leikmenn eru eftir á." „Það er ákveðið áhyggjuefni hversu langt við erum frá bestu liðunum. Þau eiga ekki að geta valtað yfir okkur eins og Svíar gerðu í dag. Við skulum ekki gleyma því að við unnum Svía á þessu móti fyrir tveimur árum síðan." „Í dag spiluðum við illa. Við héldum boltanum ekki nógu vel innan liðsins og það vantaði hreyfingu án bolta. Við getum reynt að leita endalausra afsakana en ég ræddi við leikmenn eftir leik um að nú þyrfti hver og einasti að líta í eigin barm." „Það eru enn tveir leikir eftir á þessu móti og nú þýðir ekkert volæði og engin sjálfsvorkun. Við verðum bara að gera betur í þeim."
Fótbolti Mest lesið Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Formúla 1 „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Rodri genginn í raðir Barcelona Fótbolti Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Fótbolti Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Fótbolti Fleiri fréttir Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enn á gjörgæslu eftir að hafa misst fótanna í sundlaug Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Sjá meira