Fótbolti

Gattuso orðinn spilandi þjálfari hjá Sion

Gattuso er enn á fullu.
Gattuso er enn á fullu.
Hinn 35 ára gamli fyrrum miðjumaður AC Milan, Gennaro Gattuso, er ekkiaf baki dottinn en hann er núna orðinn spilandi þjálfari hjá svissneska úrvalsdeildarliðinu Sion.

Þjálfarinn á undan Gattuso hefur verið gerður að njósnara. Gattuson er fimmti þjálfari félagsins á þessari leiktíð.

Sion er í fjórða sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Grasshoppers. Gattuso hefur verið fyrirliði liðsins en tekur nú á sig aukna ábyrgð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×