Erlent

Nýr páfi skipaður fyrr en áætlað var

MYND/AFP
Líkur eru á að páfakjörsfundi verði flýtt, þetta tilkynnti talsmaður Páfagarðs, séra Federico Lombardi, í dag. Eins og greint var frá fyrr í vikunni mun Benedikt páfi sextándi láta af embætti í lok mánaðar.

Hefðinni samkvæmt á val á nýjum páfa að hefjast tuttugu dögum síðar. Í samtali við AP-fréttaveituna sagði Lombardi að helstu ráðamenn innan kaþólsku kirkjunnar séu nú að íhuga að flýta ferlinu.

Hingað til hefur tímabilið eftir að páfi lætur af embætti yfirleitt verið notað til að skipuleggja fund þeirra hundrað og sautján kardínála sem koma að valinu.

Lombardi segir að staða mála sé önnur í tilfelli Benedikts páfa enda hefur hann sjálfur gefið út að hann muni hverfa úr embætti. Þannig hafa kardínálar nægan tíma til að íhuga val sitt og útnefningu. Nýr páfi verður því mögulega kynntur til leiks í lok mánaðarins eða byrjun mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×