Rio með sigurmarkið í síðasta heimaleik Ferguson Stefán Árni Pálsson skrifar 12. maí 2013 00:01 Síðasti heimaleikur Man. Utd undir stjórn Ferguson fer fram í dag.
Leikmenn Manchester United náðu að kveðja Sir Alex Ferguson með sigri en liðið vann Swansea, 2-1, í dag en þetta var síðasti leikur stjórans á Old Trafford. Rio Ferdinand skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok. Það var vel tekið á móti Sir Alex Ferguson en bæði lið höfðu stillt sér upp og stóðu heiðursvörð um stjórann þegar hann gekk inná Old Trafford í síðasta sinn sem knattspyrnustjóri Manchester United. Leikurinn hófst heldur rólega en Manchester United réði ferðinni í fyrri hálfleiknum. Fyrsta mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins þegar Javier Hernández skoraði fínt mark eftir skelfilega varnartilburði Swansea. Michu jafnaði síðan metin í upphafi síðari hálfleiksins með laglegu marki þegar hann stýrði boltanum í netið með vinstri fæti eftir fasta fyrirgjöf inn í vítateig United. Það stefndi allt í jafntefli en sigurmarkið kom rétt fyrir leikslok þegar Rio Ferdinand þrumaði boltanum í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu. Frábær endir fyrir Alex Ferguson á Old Trafford en leikurinn í dag var í 1499. skipti sem hann stýrir liðinu. Þetta var fyrsta mark Ferdinand fyrir United í fimm ár og fór vel á því að það kom í leiknum í dag.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira