Tottenham með mikilvægan sigur á Stoke Stefán Árni Pálsson skrifar 12. maí 2013 00:01
Tottenham vann frábæran sigur, 2-1, á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að liðið hafði lent 1-0 undir í upphafi leiksins. Leikurinn fór fram á Britannia-vellinum í Stoke. Steven N'Zonzi, leikmaður Stoke, skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins þriggja mínútna leik og kom heimamönnum yfir. Clint Dempsey jafnaði síðan metin fimmtán mínútum síðar þegar hann vippaði boltanum í autt markið hjá Stoke eftir misheppnaða hreinsun frá varnarmanni Stoke. Staðan var því 1-1 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn byrjaði ekki vænlega fyrir heimamenn í Stoke en Charlie Adam fékk strax að líta sitt annað gula spjald í leiknum og því var hann fokinn af velli. Stoke var því einu leikmanni færri út leikinn. Liðin voru bæði í vandræðum með að skapa sér færi næstu mínúturnar en gestirnir náðu að koma boltanum í netið þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Emmanuel Adebayor skoraði þá mark af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Clint Dempsey. Niðurstaðan því gríðarlega mikilvægur sigur Tottenham sem berst fyrir fjórða sætinu í deildinni sem gefur keppnisrétt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Tottenham er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 69 stig, tveimur stigum á undan Arsenal sem á leik til góða gegn Wigan á þriðjudagskvöldið. Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, kom inná sem varamaður þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum og náði ekki að setja mark sitt á leikinn.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira