Enski boltinn

Sumarsögunni um Fabregas lokið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Nordicphotos/Getty
„Draumur minn hefur alltaf verið að spila með Barcelona og það hefur ekki breyst," segir Cesc Fabregas, leikmaður Barcelona.

Manchester United hefur verið á höttunum eftir spænska miðjumanninum í sumar. Hafa Englandsmeistararnir lagt fram að minnsta kosti tvö tilboð en þeim verið hafnað.

Fabregas spilaði í 7-1 sigri Börsunga á tælenska landsliðinu í gær. Hann útilokar brottför frá félaginu.

„Ég er afar ánægður hjá Barcelona og það hefur aldrei hvarflað að mér að yfirgefa félagið."

Undanfarin sumur hefur Fabregas verið í fararbroddi þegar komið hefur að slúðri varðandi félagaskipti. Nú virðist enn einn kaflinn í sögu Fabregas á enda runninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×