Hull upp í ensku úrvalsdeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 14:06 Leikmenn Hull fagna. Mynd/NordicPhotos/Getty
Hull City tryggði sér annað sætið í ensku b-deildinni í fótbolta og þar með sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næsta ári með því að gera 2-2 jafntefli við Cardiff í lokaumferðinni í dag. Það var mikil dramatík út um alla töflu þegar 46. og síðasta umferð ensku b-deildarinnar fór fram í dag. Cardiff var þegar búið að tryggja sér sigur í deildinni og sæti í ensku úrvalsdeildinni en Hull var að keppa við Watford um annað sætið. Fjögur næstu lið spila síðan um þriðja sætið í umspili. Hull var 2-1 yfir á móti Cardiff og klúðraði þá víti sem hefði komið liðinu í 3-1 og tryggt endanlega sætið. Cardiff náði hinsvegar að jafna metin og því átti Watford enn möguleika á að taka annað sætið af Hull. Leikur Watford og Leeds tafðist og því voru um tíu mínútur eftir þegar leik Hull lauk. Þá var staðan 1-1 og Watford þurfti eitt mark til að komast upp. Watford sendi alla í sókn og sú áhætta bar ekki árangur því Ross McCormack tryggði Leeds 2-1 sigur eftir skyndisókn. Strákarnir hans Gianfranco Zola sátu því eftir með sárt ennið á meðan leikmenn Hull fögnuðu í leikmannagöngunum. Watford fer í umspilið ásamt Brighton, Crystal Palace og Leicester.Steve Bruce er stjóri Hull City og er hann því aftur kominn upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa verið rekinn frá Sunderland í nóvember 2011. Cardiff og Hull urðu hinsvegar í tveimur efstu sætunum og fara beint upp.Hull City var síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2009-10. Cardiff er komið upp í fyrsta sinn síðan að úrvalsdeildina var sett á laggirnar. Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn í dag en Heiðar Helguson er kominn heim. Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Wolves urðu að sætta sig við fall niður í ensku C-deildina eftir 2-0 tap á móti Brighton. Peterborough, Wolves og Bristol City féllu úr ensku b-deildinni.Liðin sem fara beint upp: Cardiff, HullLiðin sem fara í úrslitakeppnina um eitt laust sæti: Watford, Brighton, Crystal Palace, Leicester.Liðin sem féllu: Peterborough, Wolves, Bristol City.
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira