Einn fágætasti hvalur heims sást í fyrsta sinn 10. nóvember 2012 07:00 Árið 2010 áttuðu menn sig ekki á að þarna væri komin ein fágætasta hvalategund heims. Fréttablaðið/AP
Vísindamenn hafa komist að því að tveir hvalir, sem rak á strönd við Nýja-Sjáland á gamlárskvöld árið 2010, hafi verið af einni fágætustu hvalategund heims. Í fyrstu var talið að hvalirnir, fimm metra langt kvendýr og þriggja metra langur kálfur hennar, væru af annarri tegund andarnefja, sem algeng er í Suðurhöfum. Þeir voru því urðaðir við fyrsta tækifæri. Það var ekki fyrr en sýni, sem tekin höfðu verið úr þeim, höfðu verið rannsökuð af vísindamönnum sem í ljós kom að þarna hefði verið blaðtennt andarnefja á ferðinni, en sú hvalategund hefur aldrei sést á lífi. Tvisvar áður hafa fundist beinagrindur af þessari hvalategund, en sáralítið er vitað um lifnaðarhætti hennar annað en að hún hefst við á miklu dýpi í Suður-Kyrrahafi og nærist einkum á smokkfiski. „Þetta er býsna stórkostlegt,“ segir Ewan Fordyce, prófessor við Otago-háskólann á Nýja-Sjálandi. „Fáar, ef nokkrar, tegundir spendýra á jörðunni eru fágætari en þessi.“ Eftir að rannsóknir á sýnunum höfðu leitt í ljós sannleikann, fóru vísindamenn á staðinn til að grafa upp leifar dýranna. Frekari rannsóknir hafa síðan staðfest að þarna er þessi fágæta hvaltegund á ferðinni.- gb
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira