Rannsaka fjölda óleystra morðmála á ný 14. nóvember 2012 09:00 Danska lögreglan er vongóð um að ná að upplýsa mörg óuppleyst mál með hjálp nýrrar tækni til greiningar lífsýna. Nordicphotos/Getty
Dönsk lögregluyfirvöld eru vongóð um að ná að leysa mörg óleyst morðmál frá fyrri árum. Rannsókn hefur verið hafin á ný í tólf málum hið minnsta eftir að ný tækni varpaði ljósi á nothæf lífsýni í málsgögnum í geymslu. Af mörgum þeirra mátti greina erfðaefni sem gæti varpað nýju ljósi á mál, eða sannað sekt grunaðra. Samkvæmt því sem fram kemur á vef Politiken gerir nýja tæknin, svokölluð PCR-tækni, rannsóknardeildum lögreglu það kleift að taka lítinn hluta af erfðaefni og magna hann upp til að fylla út í myndina af erfðamengi. Lögreglan rannsakar nú af fullum krafti óleyst morðmál sem ná allt frá árinu 1967 til 2007. Í einu þeirra var búið að afmarka hóp grunaðra sem nú er hægt að bera saman við þau lífsýni sem fundust á morðvettvangi á sínum tíma. Í kjölfarið hafa lögregluembætti víðar um land lýst yfir áætlunum sínum um að grandskoða fjöldann allan af óleystum málum með það að sjónarmiði að grafa upp ný sönnunargögn sem gætu varpað ljósi á hver gæti hafa verið þar að verki. Politiken hefur þó eftir Jens Möller hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn að DNA-sýni séu ekki nóg ef enginn grunaður er til að bera sýnið saman við og hvetur borgara sem gætu haft upplýsingar um málin til að hafa samband. - þj
Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Erlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Kastrup lokað vegna drónaflugs Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Fyrirgefur morðingjanum Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Trump og Selenskí funda á ný Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Sjá meira